Fjármálasvið

Fjármálasvið miðlar fjármagni með arðbærum og skilvirkum hætti innan Arion banka og sér til þess að lausafjárstaða bankans sé ávallt í samræmi við kröfur stjórnar og eftirlitsaðila. Sviðið útvegar lánsfjármagn á innlendum og erlendum mörkuðum á hagstæðum kjörum sem gera bankanum enn betur kleift að þjónusta viðskiptavini. Fjármálasvið sér einnig um markaðsvakt sem stuðlar að auknum seljanleika hluta- og skuldabréfa á íslenskum verðbréfamarkaði. Sviðið sér jafnframt um allar greiðslur og frágang viðskipta vegna útlána, innlána og verðbréfaviðskipta. Fjármálasvið gerir árs- og árshlutareikninga bankans og annast margs konar skýrslugjöf. Þannig stuðlar fjármálasvið að því að stjórn, hinar ýmsu einingar bankans, dótturfélög og bankinn í heild nái hámarksárangri fyrir viðskiptavini, starfsfólk og hluthafa. Fjármálasvið annast jafnframt skýrslugjöf til eftirlitsaðila og uppfyllir þannig kröfur sem eru undirstaða starfsleyfis. Að lokum er það hlutverk fjármálasviðs að tryggja góðan rekstur og sjá starfsfólki bankans fyrir góðu vinnuumhverfi sem styður það í verkefnum þess. Framkvæmdastjóri sviðsins er Stefán Pétursson.

Fjárstýring stýrir og miðlar fjármagni með skilvirkum hætti á milli eininga bankans. Deildin er miðstöð alls fjármagns í bankanum og sér um miðlun á innstæðum viðskiptavina, heildsölufjármögnun, gjaldeyri og öðrum fjármálaafurðum. Deildin stýrir lausu fé og viðheldur jafnvægi í rekstri og efnahag bankans í samræmi við áhættuvilja stjórnar og reglur eftirlitsaðila. Fjárstýring sér jafnframt um að útvega stöðuga lánsfjármögnun á hagstæðum kjörum sem styrkir samkeppnishæfni bankans og gerir hann betur í stakk búinn til þess að þjónusta viðskiptavini sína. Þá sinnir fjárstýring markaðsvakt með hlutabréf og skuldabréf á íslenskum markaði og miðlar gjaldeyri fyrir viðskiptavini bankans.

Reikningshald sér um gerð árs- og árshlutareikninga fyrir bankann, dótturfélög og félög og sjóði í rekstri hjá bankanum og veitir auk þess réttar og tímanlegar upplýsingar sem stuðla að bættum rekstri. Störf deildarinnar miða að því að auka traust hluthafa, stjórnar, eftirlitsaðila og almennings.

Hagdeild annast skýrslu- og upplýsingagjöf til eftirlitsaðila en regluleg skil á ýmsum upplýsingum eru ein af forsendum starfsleyfis bankans. Deildin hefur umsjón með áætlunargerð og viðhaldi viðskiptaáætlunar. Hagdeild styður einnig við ákvarðanatöku innan bankans með því að veita stjórn og starfsfólki upplýsingar og gögn.

Rekstrardeild heldur utan um rekstrarkostnað bankans og veitir upplýsingar þar að lútandi. Deildin sinnir einnig virku kostnaðareftirliti og styður þar með við að kostnaðarhlutfall sé í samræmi við markmið og stuðlar að aukinni kostnaðarvitund innan bankans. Deildin sér einnig um innkaupastýringu sem hefur það hlutverk að samræma innkaup bankans með það að markmiði að ná fram hagræðingu í rekstri. Styrk stýring innkaupa eflir jafnframt samband bankans við birgja hans og tryggir honum bestu kjör. Þá hefur rekstrardeild það hlutverk að sjá um rekstur og fjárfestingu í húsnæði bankans, fullnustueignir og sölu á þeim sem og veitingaþjónustu og aðra þjónustu við starfsfólk og viðskiptavini.

Viðskiptaumsjón ber ábyrgð á öllum greiðslum og frágangi viðskipta vegna útlána, innlána, verðbréfaviðskipta og greiðslumiðlunar. Viðskiptaumsjón sér einnig um skjalastjórnun bankans. Þannig sér viðskiptaumsjón um að tryggja rétta skráningu fjármálagjörninga í kerfi bankans og fylgni við reglur um útfyllingu, vistun og umsýslu skjala. Auk þess sér viðskiptaumsjón um útgreiðslu lífeyris, samskipti við erlendar fjármálastofnanir, dagleg skýrsluskil og þróun stafrænna vinnuþjarka.